Hið afdrifaríka hundshvarf

Jim Beach hefur verið fluga á tónlistarvegg heimsins í marga áratugi, hefur verið umoðsmaður eða persónulegur vinur sumra af þekktari tónlistarmönnum sögunnar.  Fyrir vikið er addressubók hans feit og þykk og geymir mörg netföng og símanúmer gaman er að skoða.

Fyrir allnokkru týndi Jim Beach hundi.  Hann býr í Montreux við Genfarvatn og ætlaði frú Beach sannarlega að koma að gagni í leit að seppa og sendi út hjálparbeiðni úr tölvu karlsins.  Líkast til hefur hún ætlað að senda á vini og nágranna en smellti á ranga hnappa og sendi skeyti sitt á alla í feitu og þykku addressubókinni.  Elton John! Nennir þú að kíkja út og leita að hundinum mínum?  Hann er á vappi hér einhversstaðar í Montreux!

Frú Beach setti alla addressubókina í "To:" línuna - sendi ekki blint afrit.  Allir fengu netföng allra.  Vel á annað þúsund netföng.

Og vegna smávægilegs atviks þá hafði lítt þekktur Íslendingur á miðjum aldri þurft að senda þessum Jim litla fyrirspurn nokkru áður en hundshvarfið kom til.  Og fyrir einhverja tölvu-sjálfvirkni endaði netfang Íslendingsins í feitu addressubókinni.

Undrun Íslendingsins varð mikil er hann fékk skeytið um hundshvarfið - og sá öll netföngin.  Þarna voru netföng flestra þeirra tónlistarmanna sem hann hafði hlustað á og dáð frá unglingsárum.  Þarna var t.d. megnið af þeim sem stigu á svið á Live Aid tónleikunum frægu.  Þarna voru prívat netföng manna eins og Elton John, George Michael, Queen-meðlima, Annie Lennox, AC/DC-meðlima, Kate Bush, David Bowie o.fl.  Ekki þó Britney 50 cent eða Backstreet Boys heldur meira miðaldra lið.  Og meira Evrópa heldur en USA.  Þó var Beyoncé Knowles þarna en ekki Cliff Richard!  Og auðvitað hvorki Elvis né Freddie.

Í fyrstu hugði Íslendingurinn þetta vera gullnámu - fátt væri skemmtilegra en að eiga þess kost að spjalla lítillega við allt þetta fólk.  En fljótt runnu tvær grímur á pilt; hvað ætti hann svosum að segja við þessa framverði tónlistarinnar?  "Heyrðu Elton, ég hef samið alveg æðisleg júróvísion lög, viltu heyra nokkur?"  Eða: "Heyrðu Beyoncé, mér finnst þú vera æðislegur dansari, kanntu nokkuð gömlu dansana?  The famous "Skottís", you know!!!"

Fljótlega komst piltur að því að hér var um að ræða sveitapiltsins draum; að hann hefði lítið við þetta fólk að tala.  Á meðan liggur listinn ónotaður og hringar sig hægt og bítandi síðustu hringina í kringum niðurfall rafrænu ruslafötunnar.

Og þó ekki alveg ónotaður.  Það var of mikil freisting að láta netfang hjá Brian May - gítarleikara Queen fara með öllu forgörðum.  Enda er hann annálað kurteisisdýr og einnig raunvísindalegt gáfumenni svo að eitthvað kæmi kannski út úr því að senda honum línu...  Og það varð úr... pilturinn sendi Brian H. May litla kveðjur frá Íslandi og fékk svar samdægurs.  Og eins og við mátti búast var svarið kurteist en sprellifjörugt; þar segir m.a.:

...You're right ... I have never been to Iceland ... I hear it's very beautiful, and of course geologically unique, being atop one of the upward springs of Magma which forms our Tectonic system !   I would love to see it.   Of course the first thing that comes to mind for people like us is that Iceland is killing all the whales which everyone else is trying to protect ...  so I hope you will tell your government how I feel !  Don't worry, it's not I'm not very enamoured of OUR government's behaviour either ! ...

Varla eru til margir heimsþekktir rokkgítarleikarar sem geta rabbað um bergkvikur (magma) og jarðskorpuhreyfingar (tectonics) !  (Brian May er með Ph.D. gráðu í stjörnufræði frá Imperial College)

brianmay2

Toppmaður hann Brian May!

 


Sjálfsvirðing kvenna brotin niður með lágkúrulegu fjölmiðlaefni

Hér er merkileg “auglýsing” – er hún ekki bara í góðu lagi?

blog_birting1  
(Tilbúin auglýsing)

Flestir eru væntanlega þeirrar skoðunnar að skilaboðin í þessari tilbúnu "auglýsingu" séu hreint fáránleg í alla staði.  Hví er þá keimlíkum skilaboðum leyft að flæða um samfélagið?

augl_bad

Ofangreint “fréttaefni” er hið svokallaða lágkúrulega fjölmiðlaefni sem hefur flætt um hin vestræna heim á síðari árum.  Áhrif af þessu efni eru neikvæð bæði á einstaklingana sem það les en einnig á þá einstaklinga sem reyna að forðast þetta efni.  Áhrifin á samfélagið allt eru þannig neikvæð enda er styður það varla undir blómlegt samfélag þegar ýtt er undir ómerkilegar hvatir og fólk í sífellu minnt á hvað það sjálft eða aðrir eru misheppnaðir á einhvern hátt.

Lágkúrlegt fjölmiðlaefni, eins og úr dæmunum hér að ofan, ýtir undir hugsanir eins og:

     • “Frávik frá staðalímyndum (t.d. hrukkur o.fl.) eru óaðlaðandi”
     • “Margbreytileiki í útliti er neikvæður”
     • “Konum sem tekst ekki að fylgja staðaímyndum eru síður gjaldgengar”
     • “Hinn breytilega mannlega flóra er sett í flokk með varasömum, illa hönnuðum hlutum.”

 

Og hjá ungu fólki sem er að móta sína hugsun og áherslur í lífinu þá er stöðugt verið senda því skilaboð um að útlitsþættir eru miklu mikilvægari en hinn innri manngerð.  Viljum við virkilega að börn okkar alist upp í því þjóðfélagi sem sendir þeim slík skilaboð? 

Varla er ég einn um það að hugsa að samfélagið væri betra, litríkara og skemmtilegra ef minna væri af þessu efni í umferð.

Og þó að í titli þessarar bloggfærslu sé vísað í að sjálfsímynd kvenna sé brotin niður með lágkúrunni þá er það því miður aðeins eitt dæmið.  Neikvæðum skilaboðum er með keimlíkum hætti dreift til annarra hópa m.a. barna, unglinga.  Með því að næra lágkúruna verðum við sjálf lágkúruleg og gerum minna af því sem við viljum raunverulega fást við.  Við höggvum niður þær stoðir í samfélaginu sem eiga að vera uppbyggilegar - gerum samfélagið síðra en það gæti verið.  A.m.k. ef við viljum byggja okkur upp og næra innihaldsríkt líf, lifa með mannlegri reisn en ekki stökkva á hringekjuna bara af því að þar er maður með gjallarhorn.

Hið mikla magn lágkúrunnar sem flæðir yfir okkur og grandvaraleysi okkar gagnvart lágkúrunni er farið að minna óþægilega á úrkynjunina sem varð Rómarveldi loks að falli.  Borgaraleg úrkynjun (degeneration of civic virtue) og ekki síst úrkynjun vitsmuna (degeneration of the intellect) er oft nefnt sem grunnþátturinn í falli Rómarveldis (sjá Gibbon).  Þungamiðja lágkúrulegs fjölmiðlaefnis er einmitt úrkynjun sem dyggð.  Rödd lágkúrunnar segir: "Eyddu ekki tímanum í að líta innávið, ekki næra dyggðirnar, ekki fást um samfélagslega ábyrgð.  Hér er ég, lágkúran sjálf, með nýja frétt um að Britney Spears hafi brotið nögl, já ekki bara einhverja nögl, heldur nögl á stórutá og meira að segja þeirri vinstri.  Í dag er brotin nögl aðalmálið og ef þú brýtur þína með svipuðum hætti þá ertu hænufeti nær blessaðri Britney, verður í örsmæð tímans líkur gyðjunni úr vestrinu, aðeins meiri manneskja en þú varst í gær." 

- - - - -

Einhverjir kunna að segja að lágkúrulegt fjölmiðlaefni sé um allan heim birt dagsdaglega og því sé varla hægt að breyta því.  En þetta er ekki rétt ályktun, það sýnir t.d. dæmið um herónín-dýrkunina sem hægt var að sigra:  Fyrir nokkrum árum var það orðinn landlægur siður í öllum tískutímaritum sá vafasami stíll sem kenndur er við heróín-útlitið.  Flestar helstu fyrirsætur heims – einkum þær yngri – tóku um tíma upp þennan útlitsstíl.  Ungar stúlkur vildu líkjast þeim, vildu hreinlega líta út eins og heróín-sjúklingar.  Svo voru það einfaldlega mótmæli almennings sem fengu ritstjóra tískutímarita til að sjá ljósið: Það var verið að upphefja heim fíkniefna og gera þá sem slíkum efnum neyta hátt undir höfði.  Þegar ritstjórar tískutímarita sáu spilin lögð á borðið þá hættu þeir birtingu þessara mynda.

heroin_look

Slíkt getur einnig gerst með lágkúrulegt fjölmiðlaefni, við þurfum fyrst og fremst að ræða málið, greina það frekar og leggja öll vandlega unnin gögn á borðið með það hve áhrif þessa efnis er á hugarheim ungs fólks og samfélagið allt.  Mig grunar að áhrifin séu slík að flestir muni hætta að mestu birtingu fáránlegs fjölmiðlaefnis sem gerir fátt nema að næra fýsnir og neikvæðar hugsanir einstaklinga.

 


"Undir regnbogann" - hljómar og ósungin útgáfa (Karaoke-útgáfa)

Margir hafa haft samband og beðið um ósungna útgáfu (Karaoke-útgáfu) og hljóma af laginu "Undir regnbogann".  Þetta hafa verið barnaskólar, leikskólar, áhugamannaleikfélög, tónlistarkennarar og fleiri sem ætla að leika lagið undir söng eða þá að krakkar vilja spreyta sig á að syngja lagið með undirleik. 

Það er meira en sjálfsagt að deila þessu með þeim sem áhuga hafa á.

Breytt kl 13:30: Ég setti hér í morgun tengil á ósungnu útgáfuna en svo runnu á mig tvær grímur um hvort að það væri ekki örugglega í fullkominni sátt við úgefenda.  Útgefandi taldi réttara að biðja tonlist.is að selja eintak af ósungnu útgáfunni og virði ég það.  Ég tók hana því niður af þessari síðu.

Hér er PDF-skjal með hljómum lagsins.

spila_undir_regnbogann2


Árni Grétar Finnsson er magnaður

Þegar lag mitt "I Think The World Of You" var flutt í undankeppni Eurovision í lok janúar þá gat ég þess að lagið hefði fyrst verið samið við ljóðið "Lífsþor" eftir Árna Grétar Finnsson, hafnfirskt ljóðskáld. Í framhaldi rættist gamall draumur en það var að eignast ljóðbók Árna Grétars, "Leikur að orðum", sem kom út 1982 þar sem þetta ljóð birtist fyrst.  Bókin hefur auðvitað verið ófáanleg um langt skeið.  En ég var svo heppin að komast í kynni við dóttur útgefandans, hana Ragnhildi Jónsdóttur myndlistarkonu sem átti aukaeintak af bókinni sem gaf mér.  Kann ég henni besti þakkir fyrir.

Þegar ég fór að glugga í bókina sannfærðist ég enn frekar um það að Árni Grétar Finnsson væri mjög gott skáld.  Mörg ljóða hans eiga afskaplega vel við í dag og er greinilegt að mikilvægi þess að vera sanngjarn, umburðarlyndur, auðmjúkur og heiðarlegur hefur verið ofarlega í huga Árna Grétars.

Ég tek mér hér bessaleyfi að birta tvö önnur ljóð eftir Árna sem mér finnast vera vel ort og eiga vel við um þessar mundir:

- - - - -

SJÁLFSVIRÐING
Árni Grétar Finnsson

Oftlega margan illa leikur
almannarómur,
en að glata sinni sjálfsvirðingu
er saman og dauðadómur.

Illmælgin fer sem eldur í sinu
eyðandi um engi,
en logi sem á litlu nærist
lifir aldrei lengi.

Niður að rótum naga dýrin
nýgræðlinga,
en náttúran reisir óðar aftur
ótal einstaklinga.

Orðróminn skal því aldrei hræðast
út rennur í sandinn,
en að vita sig sjálfan sannan, heilan,
það er stærsti vandinn.

- - - -

HEIMURINN ER EKKI HEIMSKUR
Árni Grétar Finnsson

Heimurinn er ekki heimskur
þó með hroka þú teljir hann þinn.
Hann sér okkur sem sandkorn,
sem skolast með öldinni inn
og flykkjast saman í fjörunni
og flökta þar til um sinn,
unz til sín þau hrífur aftur
úthafsstraumurinn.

- - - -

Og að lokum langar mig að birta ljóðið Lífsþor en margir hafa birt það á vef- og bloggsíðum sínum á undanförnum misserum.  Ég sá ljóðið fyrst á vefsíðu vinar míns Júlíusar Júlíussonar, Dalvíkingi með meiri. 

LÍFSÞOR
Árni Grétar Finnsson

Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.

Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
einurð til að forðast heimsins lævi,
vizku til að kunna að velja og hafna,
velvild, ef að andinn á að dafna.

Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka
og enginn tekur mistök sín til baka.

Því þarf magnað þor til að vera sannur maður,
meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
fylgja í verki sannfæringu sinni,
sigurviss, þó freistingarnar ginni.

- - - -

 

 


"I Think The World Of You" komst áfram - kærar þakkir!


jogvan_rehearshal

Síðasta laugardag flutti Jogvan lagið "I THINK THE WORLD OF YOU" í undankeppni Eurovision á RUV og ekki var að spyrja að færeysku töfrunum - lagið komst áfram og keppir um miðjan febrúar í úrslitaþættinum um það hvaða lag keppi fyrir hönd Íslands í Moskvu í maí.

Ég er þakklátur fyrir öll atkvæðin sem við fengum og verður gaman að sjá hvernig þetta raðast í lokaþættinum.

Margir hafa beðið mig um textann af laginu, hér er hann:

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
I THINK THE WORLD OF YOU
Lag og texti: Hallgrímur Óskarsson

I wanna believe the world is right
but the wind has given a warning.
Everything is upside down,
still I think the world of you.

I had courage, I had faith
but it seems to be gone, winterlong.
What is true and what is false?
I don't know, but I have you.

All around the world, it's gone crazy,
it's something that I feel, but you say maybe.
We’re twisting in the wind, but we have each other.
I think the world of you, when we're together.

My fair-weather friends are flying away
but you are light to guide my way
Loving me when I least deserve it
but when I need you most.

All around the world, it's gone crazy,
it's something that I feel, but you say maybe.
We’re twisting in the wind, but we have each other.
I think the world of you, when we're together.

All around the world, it's gone crazy…

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Hér svo lagið í flutningi Jogvans:

 


Undir regnbogann komst áfram - kærar þakkir

Lagið Undir regnbogann komst áfram í undankeppninni á RUV í gær.  Kærar þakkir fyrir okkur!

Til gamans birti ég hér létta upphitunaræfingu sem hópurinn tók í förðunarherberginu á RUV - allir komnir í gott stuð sýnist mér :-) 

Ótrúlega góð stemming í þessum hóp...

- - - - - - -

Ég sló á þráðinn norður í dag og spjallaði við hana Birnu ömmu mína.  Hún sagðist hafa fylgst með á RUV og þótt lagið bara gott.  Hún lætur mig sko alveg heyra það ef hún er ekki ánægð.  Þegar amma segir "gott" þá meinar hún alveg hreint virkilega gott.  "Þetta er besta lagið sem þú hefur gert strákur" sagði hún amma.  Mér varð eiginlega um og ó þegar hún sagði að þetta væri voða svipað og lagið um hana Nínu sem "skrautlegu" strákarnir og "stelpulegi knéfiðluleikarinn" sungu hér um árið.  Já, hún var ekkert að skafa af því hún elsku amma mín :-) 

 

 


Hátíðarkveðjur í bundnu máli

Ég óska öllum vinum, vandamönnum, bloggvinum og Íslendingum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar.

    Þó að nú sé nóttin löng
    og naum á daginn glæta
    glænýtt ár með sól og söng
    senn fer þig að kæta.
                                       (Höfundur: Þórdís Sigurbjörnsdóttir f.1893 - d.1978)

Megi árið 2009 verða mikið sigurár í sögu þjóðarinnar.  Hjarta margra er lítið og hnípið en þjóðin hefur ekki enn glatað eldmóðinum, kraftinum og trúnni sem byggt hefur upp þetta land.  Nú þarf að leysa þessa krafta úr læðingi og láta þá hjálpa til við að byggja upp gott, réttlátt og fjölskyldumiðað samfélag.

Það er ótrúlegur sannleikur í orðum Gunnars Dal þegar hann sagði nýlega í Kastljósi að þeir sem eignist mikið af peningum verði um leið þrælar fjármagnsins (þeir sem fara "yfir landamæri hins ríka manns).  Ekki er annað að sjá en að þetta sé rétt hjá Gunnari.  Nægir að líta rétt í kringum sig til að sjá þetta gerast.

Góðar stundir og gleðileg jól.


2 flytjendur í væntanlegri Eurovision-keppni á RUV

Í því undarlega ástandi sem ríkir á Íslandi er hálf skrítið að hugsa um Eurovision-keppnina sem hefst nú í janúar á RUV.  Að sumu leyti hefur keppnin ímynd glamúrs og yfirborðsmennsku en þær breytingar sem orðið hafa á síðustu vikum á Íslandi eru þannig að hugur svo margra nú er svo mikið tengdur gildum sem oft hafa staðið Eurovision fjarri: hógværð, auðmýkt, þakklæti og samkennd.  Það verður skemmtilegt að sjá hvernig keppnin aðlagar sig að breyttu landslagi. 

Ég hef áður tekið þátt í undankeppni Eurovision hér heima.  Meira að segja farið út og keppt í "stóru" keppninni með lag.  Það var gaman :-)

Vegna anna stóð hugur minn ansi langt frá Eurovision þátttöku nú í haust - ég ætlaði alls ekki að vera með nú í þetta sinnið - en þegar hinn geðþekki Jógvan Hansen - maðurinn með gullröddina - hringdi í mig í haust og bað um 2 lög þá var eiginlega ekki hægt að segja nei; þá voru Færeyingar nýbúnir að lána Íslendingum ansi háa fjárupphæð svo ekki var hægt að hlaupast undan hinni færeysku bón.  Svo er líka bara svo gaman að vinna með Jógvan að það þýddi ekkert annað en að "hræra saman" í 2 lög (annað var samið sérstaklega, hitt átti ég).  Bæði komust inn og Jógvan fékk því að velja hvaða lag hann vildi syngja.

Hann valdi lagið "I Think The World Of You" sem verður flutt á RUV þann 31. janúar.  Lagið er kraftmikið og pínulítið dramatískt en Jógvan mun syngja lagið á ensku.  Það verður gaman að heyra Jógvan taka á því í janúar.

Samkvæmt www.ESCToday.com eru allmargir Eurovision aðdáendur (af báðum kynjum!) sem hafa nú þegar tekið þátttöku Jógvans mjög fagnandi enda er hér fríðleikspiltur á ferð:

jogvan_blog2

 

Svo var hitt lagið þá eftir og ég var svo heppinn að fá hinn geðþekka "Veðurguð" hann Ingó til að syngja það lag.  Rödd hans hefur aldeilis glumið í eyrum landsmanna því hann sjálfur samdi og flutti lagið "Bahama" sem hefur verið mjög vinsælt.

Þetta lag er létt og "jolly" og sumir segja að yfir því hvíli skandinavískur popp-blær hvað sem það nú þýðir :-)  Það verður allavegann gaman að heyra Ingó syngja lagið en það verður flutt þann 17. janúar á RUV.  Og hér er líka mynd af þessum knáa kappa:

ingo_blog1

- - - - - - - -

Svo verða auðvitað fleiri spennandi flytjendur í þessari keppni - 13 höfundar með 16 lög segir manni að flytjendur verði allt að 16 talsins!  M.a. hefur það komið fram að Halla Vilhjálms muni flytja eitt lag og verður það spennandi að heyra hennar flutning.  Ég veit eiginlega ekkert um fleiri flytjendur en gaman væri að vita meira um það ef það hefur einhversstaðar komið fram.

 


Getur takk-hnappur bætt umferðarmenningu?

Ef lítið ljósaskilti sem blikkar með orðinu TAKK í 2-3 sekúndur í bakglugga, getur það skapað gulrót fyrir ökumenn til að haga sér betur í umferðinni?  Væri raunhæft að hafa hnapp a.m.k.í sumu bifreiðum sem gerir ökumönnum betur kleyft að þakka fyrir veitta tillitsemi?

Fullorðið fólk er eins og börn, því finnst gaman að fá hrós.  Leiðin til að fá fólk til að hlýða fyrirmælum er oft að nota hrós fremur en skammir og refsingar. 

Og þegar við erum truntur í umferðinni væri hugsanlega hægt að fá okkur til að sýna meiri tillittsemi ef ökumenn gætu sagt TAKK í bakglugga?  Gæti þetta bætt umferðarmenningu?

Oft hafa bílstjórar sýnt mér mikla tillitssemi í umferðinni.  Svo mikla að mig hefur stundum langað að færa þeim örlitla þökk fyrir.  Að veifa í þakklætisskyni gengur oft ekki enda getur það truflað ökumann frá athygli í umferðinni.  Hví ekki að geta látið orðið TAKK tvíblikka snöggt í bakglugga?  Myndi það hafa jákvæð áhrif á umferðarmenninguna?

Gaman væri ef þetta yrði prófað. 

  takk_takki

takk_i_bakglugga

 

 


Hinn dæmigerði Íslendingur hefur þær einar áhyggjur af spillingu að komast ekki í hana sjálfur.

Er þetta nú virkilega aðalmálið sem þarf að nudda sér upp úr?

- - - - - - - - - - - - -
i_naudvorn_vegna_launa
- - - - - - - - - - - - -

Og hver er eiginlega hin umrædda nauðvörn? 

Það kom fram í fjölmiðlum í dag að meðallaun allra starfsmanna RUV væru 500 þús.  Svo er Egill sem stýrir tveimur af vinsælustu þáttunum með 800 þús.  Þetta kalla ég eðlilegan mun.  Varla er ætlast til þess að hér ríki stalínískt fyrirkomulag þar sem allir starfsmenn RUV hafa sömu laun?

Væri ekki nær að einblína á töluvert meira óréttlæti í launastrúktúr t.d. sumra peningamanna?  Þar var munurinn mörg þúsund faldur á við meðallaun Íslendinga.  Munurinn á meðallaunum RUV og launum Egils er margfallt minni:

um_launamun_2tilvik

- - - - - - -

Annars er hún oft döpur um að hugsa hin íslenska sál.  Líklega var það rétt sem Jónas Kristjánsson sagði í leiðara í DV þann 16. febrúar 1993:

Hinn dæmigerði Íslendingur hefur þær einar áhyggjur af spillingu að komast ekki í hana sjálfur.

 


Surtsblóð á borðum? (Um nýyrði)

Er ekki hálfaumt að segja "leyser", "kaktus" og "tóbak"?  Þessi orð eiga ekkert skylt við íslensku.  Mörg haganlega smíðuð nýyrði bíða þess að ná fótfestu í málinu og mér finnst bráðskemmtilegt að gera tilraunir með að nota góð nýyrði. 

Hér eru nokkrar tillögur sem Miðstöð háfrónska tungumálsins er að reyna að koma á framfæri.  Gaman væri ef fjölmiðlar og þeir sem rita texta sem margir lesa myndu reyna að koma einhverjum  tillögum um betri íslensku á framfæri.  Það þarf ekkert að umbylta málinu á einum degi en að bæta við einu og einu nýju og betra orði í málsins flóru er góðra gjalda vert.  Sérstaklega ef það ýtir tökuorðum út.

Hér eru nokkrar tillögur sem mér finnast allrar athygli verðar: 

hafronska1  

Ég rak augun í tillögu þeirra á þýðingu á "tabaskó-sósu".  Auðvitað gengur ekki að við Íslendingar segjum næstu árhundruðin "tabaskó-sósa".  En eru allir sáttir við orðið surtsblóð?  Var surtsblóð á matarborði einhvers í dag?

Meira á vef þeirra hér.

 

 


"Hitt" stríðið sem þarf að vinnast

Nú finnst 10% danskra stúlkna allt í lagi að stunda munnmök fái þær svosum einn hamborgara fyrir.  Nærri 40% drengja finnst allt í lagi að stúlkur geri þetta.  Og þessi hlutföll fara vaxandi!

Ungt fólk er smásaman að komast á þá skoðun að vændi sé bara í lagi og eðlilegur hluti af því að komast áfram í lífinu!  Eitt tott og þá fæ ég kannski sneið af kökunni.  Þetta er ömureg þróun.  Eiginlega úrkynjun.

Meginástæða þessa er einfaldlega allt þetta magn af klámi sem bíður við "útihurðina á hverju heimili" - á algengum vefsíðum sem allir komast á og í tónlistarmyndböndum og ýmsu efni sem flæðir út um allt - "klámvæðing heimsins" er því miður ein ömurlegasta staðreynd nútímans.  Ömurlegri en "kreppan" því hún mun verða sigruð.  "Klámvæðinguna" getur reynst erfiðara að sigra.

Mig langar að segja þessari þróun stríð á hendur - en finn fyrir vanmætti a.m.k. sem stendur.  Hvað er til ráða?  Það er hægt að koma í veg fyrir þetta með því að hefta mjög aðgang að þessu efni, gera það nærri ómögulegt að ná í.  Stjórnvöld gætu sett upp miklu öflugari síur við Internet-gáttir inn í landið.  Það væri ein leið.

Þá vil ég frekar Internet-aðgangsreglur Sádi-Arabíu þar sem komið er í veg fyrir nærri allt klám heldur en þetta hlægilega rotna frjálsræði sem hér ríkir í þessum efnum.

Félagsmaður í frjálshyggjufélaginu sagði við mig um daginn: "Sko - þetta snýst bara um það að allir geti valið það sem þeir vilja, og ef einhverjir vilja ekki klám þá eiga þeir ekki að velja það."  Ég vissi ekki hvort ég átti að hlægja eða gráta!  Minnir mig á minn eigin hugsunarhátt þegar ég var óharnaður og blautur á bak við eyrun.  Óþroskaður unglingur sem ekki sá samhengi hlutanna.

Segjum þessari þróun stríð á hendur!  Upphefjum raust okkar.  Skrifum ráðamönnum bréf, ýtum á þá, krefjumst aðgerða.  Fjölmiðlamenn: spyrjið ráðamenn út í aðgerðarleysi þeirra hvað þetta varðar.  Verndum börnin okkar fyrir klámvæðingunni og tökum hana algerlega úr umferð.  Ef einu landi tekst þetta þá munu önnur lönd fylgja í kjölfarið.

unglingar-kynlif


Næsta síða »

Um bloggið

Hallgrímur Óskarsson

Höfundur

Hallgrímur Óskarsson
Hallgrímur Óskarsson

Ætli að þetta verði enn eitt nöldurs- og besserwissera-bloggið eða verður haus haldið og eitthvað af viti kramið út úr hugarfylgsninu?  Til hvers í ósköpunum að eyða tíma í þetta?  Ég er hingað kominn til að svara þessum spurningum fyrir sjálfan mig.

Bloggvinir

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 44471

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband